miðvikudagur



Ömm... netið var tekið af mér aftur. Ekki er það nú gott. Þannig, að ef líkum lætur verður ekki mikið um dýrðir hér á næstunni.

Annars var ég að koma upp þessu ágæta kommentakerfi og geri ráð fyrir að þar muni fara fram málefnaleg umræða um helstu þjóðfélagsmeinin. Til þess að varpa fram blóðugri sprengju hér og nú, dettur mér í hug að tala aðeins um dýragarðinn hér á Fredriksberg. Hvað finnst fólki almennt um apana? Eru þeir ekki sætir? Þá er ég ekki að tala um stóru ljótu apana, heldur litlu. Þið vitið. Litlu, sætu... Eða, hvað finnst ykkur? Go craZy.

Og, jú, svo er þetta kommentakerfi kjörinn vettvangur fyrir sætar stelpur að lauma til mín nafnlausum athugasemdum. Geri ráð fyrir að innan skamms muni kerfið hrynja undan álaginu. En það er allt í lagi. Og svo er þetta líka tilvalið fyrir grínkarla að skrifa komment í nafni einhvers annars. Það er alltaf gott grín. Nema þegar skrifað er í mínu nafni. Það er ekki fyndið.

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mig hefur lengi langað að segja þér það Jói, en þu ert maðurinn. Ég meina, þúveist. Þú ERT mað-ur-inn! Veistu ekki hvað ég er að tala um? Jú, þú hlýtur að vita það. Langaði bara að segja það einhvers staðar.

kv.
TBH

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst aparnir líka sætir, en þeir eru samt ekki næstum því jafnsætir og þú. Tíhíhíhí...

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Blogger Jói Ben said...

Hey, takk maður. Ég sé að þetta kommentakerfi er alveg að gera góða hluti. Gott mál.

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það Tommi. En veistu hvað, mér finnst ÞÚ vera maðurinn! A.m.k. miklu frekar en ég.

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Haha ég er bara Jói Ben! Þvílíkur lúsablesi.


Hey ekki taka mark á þessum gaur hann er bara að þykjast vera ég!


Nei þú ert að þykjast vera ég!

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, okei, ég er maðurinn. En þú ert samt fallegri en ég.

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Jeg synes du være meget hyggelig Joi.

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Finnst þér ég í alvöru sætur? Eða ertu bara að segja þetta? Ok. Ef þér finnst það í alvörunni þá er ég alveg til í að hitta þig? Þúveist, eða... þúúúveiiiist. Er það ekki? Er það ekki? Eða, hvað segir þú..?

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Blogger Jói Ben said...

Mmm... já, ég er svosem alveg til í að hitta þig. En. Mmm... ég veit ekki alveg hvað vakir fyrir þér. En, já. Kyndiklefinn á morgunn, klukkan 13:00.

miðvikudagur, 09 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Men jeg kan også godt lide panda.

fimmtudagur, 10 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

jóhannes smófannpez!!!

laugardagur, 12 nóvember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home