föstudagur


Á mánudaginn næsta á ég að verja mastersritgerðina mína. Fólk má mæta ef það vill, en þó með nokkrum skilyrðum.

Stelpur eiga helst að mæta fáklæddar og sitja nálægt prófdómurunum. Og ef ég segi eitthvað fyndið, þá skulu þær flissa stelpulega og reyna að smita útfrá sér. Hann-er-nú-meiri-karlinn olnbogaskot í prófdómara er góð hugmynd.

Strákar skulu klæða sig upp sem gáfumenni, og alltaf þegar ég segi eitthvað gáfulegt eiga þeir að kinnka kollinum gáfulega. Og ef ég segi eitthvað mjög gáfulegt, er leyfilegt að segja: Umm... athyglisvert, einkar athyglisvert. Það er greinilega töggur í guttanum. Hann kallar ekki allt ömmu sína þessi fýr - jahh, fyrir utan kannski ömmu sína. Þetta verður að segja svo hátt að það læðist inn í undirmeðvitund prófdómara. Samt ekki of hátt.

Í lok fyrirlestursins á lófaklapp vel við. Bravó er kannski of mikið, en hægt er að hátta lófaklappinu þannig að það hljómi hlýlega. Að áheyrendur hafi ekki einungis fengið andlegt kikk, heldur líka pínu líkamlegt. Sem sagt, og þessu er sérstaklega beint til stelpnanna, að lófatakið á að vera blandið losta og munúð.

Ég fer ekki fram á neinar spurningar, nema þær upphefji mig á mjög afdráttarlausan hátt. Til dæmis: Af hverju ertu svona frábær Jói? Og þá myndi ég svara: Ég veit það ekki, ég er bara svona. Mmm... Svona þegar ég hugsa um það, að þá er kannski ekki viðeigandi að spyrja spurningar sem ég svara með ég veit það ekki. En hægt er að spyrja annarra spurninga sem undirstrika yfirburði mína á fræðisviðinu. Til dæmis: Hver er kvaðratrótin af þrettán? Þetta er hneykslanlega þung spurning, sérstaklega í ljósi þess að útkoman er óræð tala, en ég mun vera búinn að undirbúa fyrstu 33 aukastafina, og þá mun sá sem spurði stoppa mig. Þetta mun sannfæra prófdómarana um ágæti mitt.

Eins og ég sagði áðan, að þá má fólk mæta ef það vill, en þá bara ef það vill. Það gæti stressað mig pínulítið að einhverjir verði til vitnis um það, þegar prófdómararnir ganga í skrokk á mér að lokinni kynningu (þ.e. ef ég klúðra henni algjörlega - sem ég mun að sjálfsögðu ekki gera). Á móti kemur að þetta er opinn viðburður, og vafalaust munu einhverjir afglapar frá deildinni mæta. Þannig að, mæti hver sem vill. Þetta er auglýst nánar hér.

8 Comments:

Blogger Jói Ben said...

Já, en áb. Prófdómararnir eru bara karlmenn. Mig langar ekkert að ímynda mér þá allsbera. Ojj...

laugardagur, 26 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi ther alveg rosalega vel.
kv.Bjørk

laugardagur, 26 nóvember, 2005  
Blogger Jói Ben said...

Takk

sunnudagur, 27 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel, og farðu svo að koma þér heim, slorið bíður. Ef einhver prófdómarinn verður með stæla þá svaraðu að hætti kallanna.is: Farðu aftur í fiskbúðina, flakið þitt.

mánudagur, 28 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

hvernig gekk?

þriðjudagur, 29 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með að vera búinn!

Hvernig gekk svo?

Svanhildur.

þriðjudagur, 29 nóvember, 2005  
Blogger Palli said...

Til ham... borgara! haha ég mun aldrei óska þér til hamingju. Aldrei!

þriðjudagur, 29 nóvember, 2005  
Blogger Jói Ben said...

Takk... askór! Ho ho ho.... Tveir geta leikið þennan leik. Ég mun aldrei þakka fyrir mig. Aldrei!

miðvikudagur, 30 nóvember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home