miðvikudagur


Svar:
Ég myndi aldrei lýsa öðrum karlmanni en sjálfum mér sem huggulegum, og því hlýtur huggulegi karlmaðurinn í gátunni að vera ég. Og ég sagði síðan konunni að drepa systur sína, því að ég er svo vondur. Það er rétta lausnin.
Ég bjóst ekki við að svarið myndi koma, en Tomma Haarde tókst að ráða fram úr gátunni. Hann fær því verðlaunin: iPod að eigin vali í Applebúðinni við Gammel Möntergade (segðu bara að Jói hafi sent þig).

Annars er þessi gáta víst notuð af geðlæknum til þess að greina siðblindu. Spurningin er látin flakka, og sjúklingurinn beðinn að svara því fyrsta sem honum dettur í hug. Venjulegt fólk svarar öfundsýki eða út af arfinum. En siðblindir gefa hins vegar það svar, að konan hafi drepið systur sína til þess að hitta huggulega karlmanninn aftur í jarðarförinni. Þessu svara þeir án þess að hugsa.

Það sem veldur mér áhyggjum, er að þetta svar kom í kommenta-kerfinu. Einhver sem notar leyninafnið ,,Krúsa" rataði strax á þessa lausn. Og það sem veldur mér eiginlega mestum áhyggjum er að hún heimtar verðlaun (þó að hún hafi í raun giskað á rangt svart). Ég get ekkert sagt til um hvernig þessi ,,Krúsa" hugsar, en ef grunur minn reynist réttur mun hún beita öllum tiltækum ráðum til að innheimta verðlaunin. Jafnvel halda í fæturna á mér, og láta mig dingla fram af mjög háu húsi, á meðan ég grátbið hana um náð og lofa öllu góðu. Úff... Þetta lítur ekki vel út.

9 Comments:

Blogger T said...

Fagnaðarlæti.

miðvikudagur, 29 mars, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert svooo dauður!

xxx
Krúsa

miðvikudagur, 29 mars, 2006  
Blogger Jói Ben said...

O-ó...

fimmtudagur, 30 mars, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit hvað þú gerðir síðasta sumar...

xxx
Krúsa

fimmtudagur, 30 mars, 2006  
Blogger Jói Ben said...

Og hvað var það? Mastersverkefnið mitt? Þú hræðir mig sko ekki ,,Krúsa".

- jb

p.s.
Ég kann karate.

fimmtudagur, 30 mars, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Yes Yes but I control the Ringleaders of your tormentors!

Pabbi sér Konginn í Malmö næsta föstudag, mun hann taka Half A Person, spurning!

Rematch á Amger Tovr! Igen
Life Is a Pigstie
And If you Don´t know this WHAT DO YOU KNOW...

L

Pabbi Þinn.

sunnudagur, 02 apríl, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahaha... Ég skil ekkert í þessu kommenti, en ég veit hver þú ert. Ég tek rematchinu hvenær sem er.

L

Pabbi þinn.

sunnudagur, 02 apríl, 2006  
Blogger Jói Ben said...

Já, ok. Ég var að fatta life is a pigstie kvótið. Er að sækja plötuna og get ekki beðið. Hún á víst að vera betri en síðasta. Ekki ónýtt það.

miðvikudagur, 05 apríl, 2006  
Blogger Jói Ben said...

Já, auðvitað. Nú var ég að kveikja aftur. The Ringleaders of your tormentors. Auðvitað. Af hverju kveikti ég samt ekki fyrst á því? - Nú á ég bara eftir að átta mig á: If you don´t know that, what do you know? Geri ráð fyrir því að það sé falið einhvers staðar í texta á plötunni.

miðvikudagur, 05 apríl, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home