miðvikudagur



Ótrúlega lélegir mótmælendurnir í S-Kóreu. Þarna eru þeir að mótmæla kjarnorkutilraunum N-Kóreumanna, búnir að búa til risastórt NO.

Frábært.
N-ið allt skakkt og skælt. Einhver dóta-sprengja úr Leikbæ þarna í miðjunni. Í O-ið er búið að tússa kjarnorka bönnuð-merki. Svo eru allir klæddir í appelsínugula galla, ekki veit ég hvað það á að þýða. Og loks eru liggja svartklæddir menn þarna eins og rusl fyrir neðan. Þetta er mjög táknrænt.

10/11/2006

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home