Kalkúnadjók
Mér finnst það vafasamt grín, þegar forseti Bandaríkjanna náðar einn kalkún. Fyrir það fyrsta, er þetta náttúrulega ekkert fyndið. En það sem gerir grínið vafasamt, er að þeir hafa í flimtingum náðunarvald Bush. Hann getur, ef hann er þannig stemndur, veitt mönnum uppgjöf saka. Þetta er hálfgert guðavald.
Og þá verður brandarinn svona: Hahahaha... Sjáiði hvað forsetinn er að gera! Hann er að náða kalkún! Kalkún!! Hverju finna þeir eiginlega upp á næst, þessir óforbetranlegu prakkarar í Hvíta húsinu?
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home