Árið gert upp
Árið 2006 var frekar gott. Lífið var þægilegt og flestir dagarnir skemmtilegir. Árið fær 7,7 í einkunn.
Það er eiginlega ekki hægt að gera upp árið, án þess að nálgast það pesónulega. Og það ætla ég ekki gera. Alla vega ekki á svo opnum vettvangi. (Note-to-self: Af hverju byrjaði ég þá að tala um þetta?)
Að öðru: Netsíða þessi hefur legið niðri undanfarna daga. Ástæðan þess er ókunn, en ég held að það hafi eitthvað að gera með hlýnandi veðurfar. Annars veit ég það ekki. (Note-to-self: Ekki skrifa aftur, nema hafa eitthvað að segja.)
Annars held ég að árið 2007 verði líka gott. Ég er eiginlega alveg viss um það.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home