Flottar myndir
Ég teiknaði mynd af Schwarzenegger. Hún er svoldið töff.
Ég fór í fótbolta í Sporthúsinu áðan. Gillzenegger var þar. Hann var að tala við einhverja stelpu. Það var líka pínu töff. Ég ákvað að teikna mynd af þessu atviki.
Hvað varð annars um Gillz? Og þegar út í það er farið, hvað varð um Emmu Thompson? Getur einhver svarað því? Hvað varð eiginlega um Gillzenegger og Emmu Thompson?
5 Comments:
Er það ómögulegt - ef maður rýnir svolítið í díteilana - að Scwarz á þessari teikningu svipi ofurlitið til andlitsdrátta teiknarans sjálfs? Dulin sjálfsmynd af einhverju tagi. Skilaboð frá undirmeðvitundinni eða einhverjum öðrum hulduheimum?
Hvað myndi Þórbergu segja um málið?
Demmit! Það átti enginn að fatta. Þetta er rétt hjá þér. En þetta gerðist eiginlega óvart. Ég sver!
Ég ætlaði alltaf að teikna mynd af Arnold, en þegar ég var búinn að teikna líkamann fannst mér hann svo flottur að ég stalst til að teikna hausinn minn í stað hans.
Ég veit að þetta hljómar pínulítið furðulega, en kommon... Þetta er allt í lagi. Er það ekki? Mig langaði bara til að sjá hvernig þetta kæmi út. - Myndir þú ekki vilja sjá hvernig þú litir út ef þú værir jafnmassaður og Arnold? Ég held það.
Þórbergur myndi líklega segja að myndin væri töff. Ok? Töff! (Veit samt ekki hvað hann myndi segja um hækuna).
Hefði Sobbeggin ekki hreinlega pantað portrett af sjálfum sér?
Líklega. - En hér eftir er bannað að vitna í Sálminn um blómið hér á þessari síðu. Það er nú ljóta bókin.
Þá köllum við hana hér eftir Ljótu bókina. Þó fyrri hlutinn hafi verið ansi góður ........
Skrifa ummæli
<< Home