Two Virgins
Kveikt var á friðarsúlunni í dag. Þeir sem fylgdust með í beinni útsendingu töluðu um að stemningin hafi verið frekar kotungsleg að hálfu molbúa og andrúmsloftið þvingað. Yoko á að hafa dreift pappa-lúðrum til fjöldans og beðið hann að kalla I love you. Það gerði náttúrulega enginn nema Yoko, og gjörningurinn varð í kjöfarið frekar vandræðalegur.
Sem minnir mig á gátu sem ég heyrði þegar ég var lítill: Hvað er gult og grætur?
Ósmekklegt grín á þriðjudegi. Það er besta grínið. En aðeins áfram um friðarsúluna. Mogginn fjallaði um þessa uppákomu og birti með myndina hér að neðan. Mér fannst ég hafa séð hana áður. En hvar? Um leið og ég áttaði mig á því, mátaði ég myndirnar hér að neðan saman.
1 Comments:
Þetta var allt frekar lúðalegt. Villi byrjaði með því að segja á ísl-ensku "congratulation" og svo var það bara "hot spring river this book?"-stemning eftir það.
Gestir Yoko voru dáldið fyndnir. Ringo talaði eins og Austin Powers og Sean var klæddur eins og 70's melludólgur. Frekar kúl!
Skrifa ummæli
<< Home