Drauuugasaga...
Gengur illa að semja plottið fyrir draugasöguna, en það kemur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég tek þátt í keppni sem þessari. Fyrir nokkrum árum skrifaði ég þrjár sögur í sambærilega keppni. Ég var að leita að þessum sögum og fann eina þeirra. Hún heitir því ágæta nafni Fiskabúr eitraðra hugsana. Hún er ágæt.
Það sem söguna hins vegar vantar, er að hún heltekur mann ekki eins og draugasögur eiga að gera. Það er ekki nógu gott.
Hér er sagan (best væri að prenta hana út og lesa við kertaljós).

6 Comments:
Sæll,
þú hendir hér fram sögu svo að sjálfsögðu verður maður að nota tækifærið og gagnrýna hana.
Mér fannst þetta ágætis lesning um tilgerðarleg skáld á Grand Rokk. Þó varð það einhvernveginn þannig að tilgerð skáldanna smitaðist út í söguna sjálfa.
Það vantar ekki mikið uppá til að sagan nái að grípa mann. Kannski nánari vísbendingar um hvað er málið með þennan skuggalega mann, og þó, óvissan veldur ákveðinni spennu.
En hér er ég að rambla áfram eins og eitthvert tilgerðarlegt skáld. Kannski ég endi þannig því ég er alvarlega að íhuga að etja kappi við þig í þessari draugasögukeppni.
Áskorun tekið!
Annars verð ég líka að taka það fram, að ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af þessari sögu. Hún kveikir ekki í mér. Mér finnst hún eiginlega ekki áhugaverð á neinn hátt.
9-12 tólf ára. Á þessum aldri var ég að horfa á Alien, Silence of the Lambs og Hellraiser. Scary shit.
Ég býst samt ekki við að forlagið vilji svoleiðis sögur. Með miklu blóði og flegnu fólki og vesen.
Þeir vilja ábyggilega einhverja sögur um vinahóp sem rannsakar eitthvað rautt shit sem virðist vera blóð en kemur svo í ljós að er tómatsósa eða eitthvað hallærislegt. (scooby doo style).
Gangi ykkur vel!
Ég var nú ansi ungur þegar ég las smásagnasafnið grænu höndina, sem mér þótti einkar óhugnanlegt, en þar var m.a. saga af dreng sem drekkti fullum poka af kettlingum. Móðir þeirra hefndi sín í lokin á sögunni með því að klóra augun úr blessuðum drengstaulanum. Man vel eftir seinustu orðunum í bókinni, en þau voru af einhverri ástæðu á ensku:
"All women are the same bitch with a million different faces."
Ég var bara alveg sáttur við þessa Fiskabúrssögu, hún er kannski einfaldlega of fyndin til að maður nái að verða hræddur. Örvar.
Skrifa ummæli
<< Home